Hef samt tekið eftir að ég er í alvöru farin að mála mig meira í anda þáttanna þegar ég geri mig til, það er kannski ágætt að ég sé að verða búin með þetta svo ég geti fært mig örlítið nær samtímanum útlitslega séð. Að öðru þá held ég að varalitur dagsins beri allra frumlegasta nafnið í varalitasafninu mínu: Pink frá Make Up Store. (
Pink er bleikur varalitur, sem áður sagt frá Make Up Store, og er lýst sem lit með creme áferð. Ef ég ætti að bera hann saman við áferð frá MAC væri það líklega lustre, þar sem hann er léttur en ekki of mjúkur. Hann minnir mjög mikið á Dolce Vita, en er ögn bleikari. Myndi til dæmis flokka DV sem nude/your lips but better en Pink færi í bleika flokkinn. (arg ég er að bilast, veljiði betra nafn næst mus)
Af einhverjum ástæðum myndast hann mun dekkri en hann er í raun, hann er alls ekki svona dökkur á vörum. En Pink er voða fínn litur sem endist þó ekki lengi á manni. Hann má þó eiga það að hann eyðist fallega og svo lítið beri á, sem er alltaf kostur.
Satt að segja sést ekki mikill munur á Pink og Dolce Vita þegar litirnir eru komnir á varirnar, (ég sé hann samt en ég skal miða við ykkur almúgann sem ekkert vitið) en ég myndi persónulega mæla meira með DV þar sem hann nærir varirnar eitthvað, en P stuðlar að þurrki. Munurinn á prísnum er samt töluverður (nars er dýrt stöff) og það er auðveldara að nálgast Pink í þessu landi. (ég er sko ekkert bitur yfir að vera komin aftur til íslands, mig langar sko ekkert út aftur... nei sko í alvöru. okei smá)
-n
-n


No comments:
Post a Comment