Varalitur dagsins: Lady Danger frá MAC.
Lady Danger er einn af mínum allra allra uppáhalds varalitum, mattur rauður frá MAC. Ég furða mig enn á af hverju ég beið svona lengi með að fá mér en hann, en það var fyrst síðasta sumar. Ég hugsaði, eins og líklega aðrir, að hann væri of líkur Russian Red en það er rangt. Í Lady Danger er undirtóninn appelsínugulari og RR blárri. Allt öðruvísi.
Það er einnig gaman að segja frá því að mínum fyrrverandi þótti þessi litur svo flottur að hann bókstaflega í hvert skipti sem eitthvað lá fyrir eða við vorum að fara út þá stakk hann upp á að ég léti þennan á mig. Ef þú ert á leið á deit með honum færðu pottþétt plús í kladdann ef þú ert með LD.
Öllu gríni sleppt þá mæli ég með Lady Danger, (SKÅL MINE ÄLSKLINGER
-n


No comments:
Post a Comment