Wednesday, May 7, 2014

Dagur 3 - Russian Red

Í dag fékk hinn fallegi Russian Red (frá MAC) að njóta sín. RR er dökkrauður mattur sem er þó heppilega ekki rosalega þurr (dæmi um þurran rauðan með mattri áferð frá MAC er Ruby Woo).
Russian Red er fullkominn ef þú ert að leita að klassísku lúkki, kjörinn fyrir tímabilaförðun eða ef þú ert í útréttingum og langar að vera beib. (ég er sek um síðara tilfellið)



Rauðir varalitir, og þá sérstaklega mattir, geta verið snúnir. Þeir eru miskunnarlausir ef þú gerir mistök og ferð t.d. út fyrir "náttúrulegu" varalínuna þína. Þess vegna finnst mér að það ætti að vera regla að nota varablýant þegar maður setur á sig rauðan varalit. Ég nota ýmist Brick eða Kiss Me Quick (báðir frá MAC).



Það er sniðugt að bera svolítið af varalitnum sem þú ætlar að nota inn á miðjar varirnar (fyrsti staðurinn sem varalitur byrjar að dofna) og leggja svo klósettpappír yfir og nudda vörunum saman, það leiðir til þess að liturinn sem er eftir verður á sínum stað. Berðu svo næstu umferð á varirnar án þess þó að fara alveg út að náttúrulega varalínunni og notaðu loks blýantinn til að ramma allt inn. Þarf varla að taka fram að sá litur þarf að passa vel við varalitinn, ég notaði Brick í dag. Það urðu minniháttar svokallaðar "blæðingar" (þegar rauði liturinn byrjar að leka í litlu, fínu línurnar í húðinni, ekki hrukkur samt - ég er bara unglingur sko) hjá mér í dag þar sem ég var ekki með neitt á sjálfu andlitinu en það er hægt að varnast því með t.d. að vera búin að setja á sig meik/hyljara eða jafnvel bara primer.



Langar líka að nefna athyglina sem ég fæ þegar ég er með þennan lit, fékk meira að segja hrós frá fína paninimanninum í dag. Hann hefur ekki litið svona á mig áður svo það hlýtur að hafa verið út af varalitnum. Ég hef heyrt frá mörgum, mörgum stelpum/konum/skvísum að þær púlla ekki rauðar varir. Not true! Það litla sem þarf er sjálfstraustið og að sjálfsögðu rétti liturinn en það sem er mikilvægast er litabrigðið. Það henta ekki allir litir hverju yfirbragði og rauðir litir geta verið í alls kyns tónum: rauðum, bláum, brúnum, bleikum. Kannski er þetta bara nördið (fríkið) í mér sem pælir svona djúpt í þessu en ég held að þetta sé ástæðan fyrir því að svona mörgum gengur svona illa að finna þann eina rétta.* Ég vona innilega að ef einhver sem er hræddur við rauða varaliti og les þetta blogg hætti því umsvífalaust og stigi út fyrir þægindarammann! Lífið er svo miklu ljúfara með rauðar varir.


Viðvörun dagsins: Ef þú ætlar að borða með rauðan varalit, og ert svolítil subba eins og undirrituð, máttu vænta þess að maturinn þinn verði rauður sem og að þú munir þurfa að beita ýmsum brögðum til að laga hann eftir átið. Langar neglur og eyrnapinnar eru vinir þínir.
-n

*Varalit að sjálfsögðu. Við ræðum ekki um karlmenn á þessu bloggi því þeir eru ömurlegir.



No comments:

Post a Comment