Seinkun. Seinkun! Reyndar bara korter en samt, en málið er að ég þrái fátt jafn mikið og mömmuknús. (mömmuknús og kjólinn úr & other stories grátigrát). Svo vill netið á þessum skítaflugvelli ekki tengjast svo ég vænti þess að geta fyrst sett 14. dag áskoruninnar inn eftir miðnætti. Grjótköst eru vinsamlegast afþökkuð þar sem þetta er ekki mér að kenna.
Dagurinn í dag einkenndist aðallega af áti-kaupum-höfuðverk (og nokkrum tárum, það er jú svo erfitt að kveðja sálarsystur sínar) Varaliturinn sem fékk að viðrast í dag í dásamlega Stokkhólmi var Dreaming Dahlia frá MAC.
Dreaming Dahlia er kóralrauður með lustre áferð og er úr vorlínu MAC þetta árið, A Fantasy of Flowers (blablabla sem ég man ekki hvað heitir og netið virkar ekki svo ég get ekki gúglað það). Lustre varalitirnir frá MAC endast ekki sérstaklega lengi á vörunum en eyðast þó rosalega fallega hægt og rólega. DD þekur vel og er einn af þessum varalitum sem ég myndi ekki para varablýant við þar sem hann þarf þess ekki. Held líka að það myndi bara ekki gera neitt sérstakt fyrir þennan lit, það myndi bara draga úr afslappsleika (it’s a word) varalitsins.
DD er ein af þeim vörum sem ég myndi mæla með fyrir þá sem langar í rauðan varalit en nenna ekki að hafa fyrir honum. Þessi krefst grínlaust engar fyrirhafnar, burtséð frá því að bæta á hann þegar þess krefst (eftir að þú blæst í ferðakodda, hann mun einnig klínast út á kinn og út um allan koddann).
Hann var reyndar limited edition, en hann kom út fyrir svo stuttu svo hann gæti enn fundist í einhverri MAC verslun. Annars skal ég láta vita ef ég rekst á sambærilegan lit.
Er ekki ágætt að þau segja go to gate, eða gå till utgång, einmitt þegar ég rita lokaorð færslunnar?
Bíddu nú við… seinkað um tíu mínútur í viðbót? Villimenni eru þetta.
-n
Ps. Það er allt morandi í ósáttum börnum hérna, hjálp!



Ú! Þessi er rosa, rosa flottur!
ReplyDelete