Tuesday, May 6, 2014

Dagur 2 - Zen Rose

Ég vil byrja færslu dagsins á að þakka kærlega fyrir þessar viðtökur sem ég hef fengið, hef hlotið yfirþyrmandi stuðning sem getur varla annað en hvatt letidýr eins og mig áfram.

Varalitur dagsins kallast Zen Rose og er einnig frá MAC.* Hann er þó ekki úr standard línunni heldur einni sem kallast Sheen Supreme. (hún er permanent, svo engar áhyggjur)
Þeir varalitir eru rosalega glossaðir og mætti gjarnan lýsa sem blöndu af varalit og glossi.



Zen Rose er það sem ég myndi kalla fjólubleikur, þó hann virðist talsvert fjólublárri þegar maður mátar hann á höndina. Góður hlutur að hafa á bakvið eyrað í varalitainnkaupum: Ekki er allt sem sýnist. Það er best að fá að prófa litinn á vörunum áður en maður rennir kortinu. Þar sem húðin á vörunum er bæði öðruvísi að uppbyggingu og í lit þá er skiljanlegt að liturinn gæti litið mismunandi út á handabaki og vörum. (döh)



Formúla SS varalitanna er rosalega þykk og þekur ágætlega vel, en eins og frændi þeirra, glossið, þá endist liturinn ekki lengi á vörum. Sökum hversu þykkur hann er og mjúkur er ég að minnsta kosti sek um að nudda vörunum saman í sífellu og senda kossa út í loftið sem leiðir til styttri líftíma hverrar umferðar. Ég myndi giska á að ég bæti á hann á svona hálftíma fresti. Kosturinn við Zen Rose er að þegar hann eyðist af vörunum lúkkar það samt alveg ennþá - sem er ekki hægt að segja um langflest gloss í heiminum.



Það er þó til leynivopn sem stríðir gegn bölvun endingartíma þessarar sérstöku formúlu og það er: varalitablýantur. Ef eitthvað stendur til (djamm, veisla, whatever) þá para ég hiklaust varalitablýant við þennan varalit. Þá eyðist hann ekki eins fljótt af þegar maður er að borða, drekka, tala, í sleik o.s.fr. Djók, hann eyðist um leið og þú ferð í sleik.
En eins og t.d. í dag þá var ég bara róleg að rölta um markaði og miðbæinn í Fló í blússandi sól þá fannst mér bæði betra og hversdagslegra að hafa hann bara einan og sér.

*Viðvörun: langflestir þeirra varalita sem tilheyra undirritaðri eru frá MAC so sue me... no, don't sue me. That is the opposite of the point that I'm trying to make. Hver þekkir quote??
-n

No comments:

Post a Comment