Að varalitum: Einn góðan veðurdag fór ég út í þeim tilgangi að kaupa mér andlitskremið Moisture Surge frá Clinique og var þegar byrjuð að græta þau kaup zu Hause því það krem er ansi dýrkeypt. Þessi tár urðu að gleðitárum á svipstundu þegar ég fékk þær upplýsingar að maður fengi kaupauka ef keyptar væru vörur yfir x verð (
frá vinstri til hægri: Cranberry Cream, Raspberry Rush, Rosalita, Pink-A-Boo
Af þessum fjórum litum eru Cranberry Cream, Raspberry Rush og Pink-a-Boo hluti af permanent Butter Shine Lipstick línu Clinique en Rosalita virðist vera litur sem er bara gefinn út í svona gjafaöskjum og svipuðu.
Í dag var ég með Pink-A-Boo, sem er lengst til hægri í ofangreindri pallettu.
Pink-A-Boo (ég fær bráðum ógeð á að skrifa þetta nafn) er fölbleikur með fullt af gylltu shimmeri. Hann er nánast gagnsær á vörunum og gerir þær í raun bara mjög glansandi. Þessi er mjög þægilegur að því leyti að það er í raun ekki eins og maður sé með varalit á sér, en hann er mjög þykkur svo það er líklega hægt að lýsa honum sem þykkum varasalva.
Eins og ég nefndi áður þá er ágætt magn af shimmeri í honum, nánast svo stór að það væri hægt að kalla það glimmer, svo því myndi ég ekki setja hann undir "your lips but better" hattinn. Það fer náttúrlega eftir ljósi og birtunni sem maður er í en mér finnst hann oft geta virst of frosty.
gestavarir dagsins: Röskva
Það er í rauninni ekkert út á Pink-A-Boo að setja þar sem fomúlan er góð og liturinn alls ekki slæmur, en hann er bara svo mikið bla. Ég er allavega mun hrifnari af hinum litunum í þessari pallettu.
-n




No comments:
Post a Comment