Í kvöld kíkti ég í Stúdentakjallarann, en þar var svolítið uppistand og þeir sem mig þekkja vita að ég get ekki neitað smá hlátri og einum bjóri eða tveimur. (
HH er solid val þar sem hann er öðruvísi og áhugaverður en krefst samt sem áður ekki mikillar fyrirhafnar.
Þar sem ég er nú þegar búin að fjalla um þennan varalit eru við litlu að bæta svo ég ákvað að taka nokkrar myndir af honum á lamennilega myndavél í þeirri veiku von að liturinn kæmi rétt út í þetta skiptið. Vonbrigði mín leyna sér ekki.
Flassmyndirnar sýna þó aðeins betur hvernig liturinn sjálfur er, svo það er lítið ljós í myrkrinu.
Flassmyndirnar sýna þó aðeins betur hvernig liturinn sjálfur er, svo það er lítið ljós í myrkrinu.
Það er mjög svekkjandi að liturinn neiti að nást á mynd hjá mér (af hverju hatar heimurinn mig) en ég held það mikið upp á hann að ég muni pottþétt nota hann aftur eitthvað í sumar. Veit þó ekki hvort ég muni blogga um hann í þriðja skiptið. (allt er þegar þrennt er? ég mun pottó gera það)
Þetta var ekkert sérstaklega bitastæð færsla en you can't win them all. Pokémon style. Var það samt ekki catch them all? Æji, who cares. Gónó bebes.
-n
-n



No comments:
Post a Comment