Monday, May 5, 2014

Útskýringar og ástæður



Sælinú!

Ég byrja þetta blessaða blogg kannski á örstuttri kynningu. Nikólína heiti ég og er 22 ára Reykjavíkurmær með meiru. Síðustu fjórum mánuðum hef ég eytt í Flórens á Ítalíu og unið mér vel, en flyt þó aftur heim á klakann aftur innan bráðar.


táknræn sjálfsmynd

Þá vil ég snúa mér að ástæðu þessarar áskorunar. Eins og elskulegur afi minn heitinn, Kurt, bý ég yfir þungri sál. Það er stutt í kvíða og stress sem leiðir ómflýjanlega til þunglyndis. Til að sporna þessu við skrifa ég ýmist, teikna eða hreyfi mig. Ég stunda líkamsrækt þó einungis í algerri neyð, svo oftar en ekki verða langir göngutúrar fyrir valinu. Svo finnst mér einnig unaðslegt að versla mér fallega hluti. Þeir sem þekkja mig vita vel af blæti mínu fyrir snyrtivörum, þá einkum varalitum. Ég á alltof marga varaliti, marga í svipuðum tónum en þó er enginn eins. Sem er einmitt afsökunin sem ég nota í hvert sinn sem ég festi kaup á nýjum. Afsökunin að ég sé förðunarfræðingur gildir einnig.
Þegar ég er með varalit líður mér eins og ég sé ósigrandi, ég er mest og best og ekkert getur á mig fengið. Fyrir mig bætir hann skap og sjálfstraust. Sem er einmitt ástæðan fyrir því að ég setti mér þessa áskorun. Ég á svo marga varaliti sem ekki verða fyrir neinni notkun þar sem ég gleymi þeim jafn óðum og ég kaupi þann næsta, sem er svo mikil synd.

Svo þegar öllu er á botninn hvolft þá passar þetta allt saman fullkomlega, ég mun bæta líðan mína og nýta birgðir mínar. Áskorunin mun standa yfir frá 5. maí til og með 25. júlí, af engri annarri ástæðu en þeirri að það er afmælisdagurinn minn. 82 dagar í allt. Þetta verður eitthvað...

Þeir sem vilja slást í för með mér í þetta magnaða ævintýri er velkomið að gera það!
Reglurnar eru einfaldar:
1) Nota skal varalit á degi hverjum (döh)
2) Ekki skal nota sama varalitinn sjö daga í röð (kannski herði ég það í tvær vikur, við sjáum til þegar lengra á dregur)
3) Taka skal mynd til að votta fyrir um að áskorun sé tekin alvarlega (selfiesek)

-n

No comments:

Post a Comment