Jæja nóg um það, þrátt fyrir vægast sagt hrikalegt nafn er varalitur dagsins alls ekki svo slæmur. Bjóðið velkominn Illusion Strawberry frá ítalska snyrtivörumerkinu Kiko.
Eins og ég sagði fyrr þá er Kiko ítalskt merki, sem virðist vera afar vinsælt meðal lýðsins af því í hvert skipti sem ég hef stungið nefinu þar inn hefur verið troðfullt af fólki. En það er alveg skiljanlegt, þeir eru með fáránlega mikið úrval af vörum sem mætti líkja við úrvalið hjá MAC. Munurinn á þessum tveimur merkjum er þó prísinn og gæðin.
Kiko er mjög ódýrt merki, Rock Idol varalitirnir kosta vanalega tæpar 8€ en eru þessa dagana á tilboði á 5,5€, svo þeir fá stig fyrir að hafa svona fjölbreytt úrval á svona lágu verði. Það verður þó að taka fram að gæðin eru líka í takt við verðið, þú færð það sem þú borgar fyrir.
Illusion Strawberry er fínasti varalitur, sérstaklega ef tekið er tillit til verðsins en þú gætir keypt þrjá Rock Idol varaliti og það myndi samt kosta þig minna en einn frá MAC. Það sem mér finnst ábótavant við hann er hversu mikið af glimmerögnum er í honum, það er enginn glans bara glimmer, sem er ekki beint minn tebolli. Hann endist lengi á vörunum en ég finn strax eftir að hafa verið með hann í nokkra klukkutíma hversu mikið varirnar þurrkast upp undir honum.
Með svona varaliti þarf bara að gera upp við sjálfan sig hvort gæði eða verð skipta meira máli.
-n



No comments:
Post a Comment