Heavenly Hybrid er með þeim nýrri í safninu en hann var hluti af vorlínu MAC, A Fantasy of Flowers, þetta árið. Sem þýðir að hann er limited edition, ég veit ekki hvernig staðan er á útgáfu nýrra lína í MAC á Íslandi þessa dagana en hann gæti mögulega enn fundist.
Nú hugsa eflaust margir: Þessi er alveg eins og Zen Rose! Ég skal viðurkenna að þeir eru afar svipaðir en HH er í plómukenndari tón, ekki jafn glansandi og ekki nærrum því eins þykkur og ZR sem er einnig almennt bjartari. Venjuleg manneskja þarf samt ekki að eiga báða liti. Ef þú átt annan hvorn þarftu ekki að eiga hinn.
Eins og ég sagði gerir engin af þessum myndum litnum virkilega skil, hann er mun fjólublárri en myndirnar sýna. Gremja vex óðum innra með mér en þetta skal ekki á mig fá. Það skal ekkert á mig fá, því elsku varalitir koma mér til bjargar! Seinna, seinna, seinna. Þið sjáið hann betur seinna.
Stutt saga úr daglegu lífi: Í dag settist ég á brauð með nutella á og labbaði um með það um stund fast við rassinn á mér í leit að þessu ákveðna brauði. Pilsið er nú í þvotti.
-n



No comments:
Post a Comment