Ég: 1 Perrar: 0
Annars hefur mér verið tjáð að varalitur dagsins er uppháhaldsvaralitur Kim Kardashian, það er varaliturinn Angel frá MAC.
Angel er ljósbleikur varalitur með frost áferð og er í permanent línunni frá MAC. Persónulega er ég ekki voðalega hrifin af þessari áferð, finnst varalitirnir oft vera of harðir og þurrka varirnar upp hraðar en aðrar áferðir. Endast ekki lengi og þekja þeir ekki nógu vel.
Angel er samt rosalega fallegur á að líta svo ef þú hefur áhuga á honum myndi ég passa vel að vera alls ekki með neinn þurrk á vörunum þar sem hann kemur sér fyrir í öllum krókum og kimum á þurrum vörum. Svo máttu einnig búast við að varirnar verði þurrar eftir á. (SELT! er það ekki?)
Angel er samt rosalega fallegur á að líta svo ef þú hefur áhuga á honum myndi ég passa vel að vera alls ekki með neinn þurrk á vörunum þar sem hann kemur sér fyrir í öllum krókum og kimum á þurrum vörum. Svo máttu einnig búast við að varirnar verði þurrar eftir á. (SELT! er það ekki?)
Við svona ljósa varaliti finnst mér betra að setja aðeins meiri áherslu á augun en ég geri vanalega, annars finnst mér andlitið eiga til að týnast svolítið í sjálfu sér. (það meikar sens ræt?) Í dag valdi ég geleyeliner frá MAC sem kallast Midnight Blues (úr MAC Me Over línunni haustið 2011) þar sem mér fannst svartur vera aðeins of þungur fyrir hversdagslegt lúkk. Undir hann notaði ég Painterly (paint pot frá MAC) sem grunn svo hann myndi nú alveg örugglega haldast á sínum stað, sama hversu mikið undirrituð svitnaði.
Þó svo Angel sé rosa fallegur myndi ég, satt að segja, ekki mæla með honum. Það eru til svo margir aðrir fallegir ljósbleikir varalitir sem umturna fínu, mjúku vörunum þínum ekki í eyðimörk. Kim K er bara eitthvað cray.
-n



Hmm.. Ég á Angel og nota hann mjög mikið. Finnst hann ekki þurrka mínar varir upp neitt sérstaklega : )
ReplyDeleteNotarðu þá varablýant með honum? Mér finnst það hjálpa sko upp á að láta hann þekja meira en það ýtir almennt meira undir þurrk. Kannski er húðin mín (og varir) bara svona þurr og vill ekki vinna með svona varalitum!
DeleteNei, nota ekki varablýant með .. kannski þess vegna sem ég finn ekki fyrir auknum þurrki. Ég bý ekki enn svo vel að eiga varablýanta með öðrum litum en Russian red - því nauðsynjar fyrst (heh)
Delete