Thursday, May 8, 2014

Dagur 4 - Rose Ensoleille

Í dag var 25° stiga hiti og sólin skein hátt á skýjalausum himni og Íslendingur á Ítalíu bölvaði sjálfri sér í fáeinar sekúntur fyrir ákveðna áskorun. Það entist þó ekki lengi og það hlakkaði í mér þegar ég stakk spenntum fingrum ofan í fínu snyrtitöskuna mína.
Varalitur fjórða dags þessa bloggs kallast Rose Ensoleille og er frá Guerlain. Ljósbleikur og léttur með dass af glansi, lýsingin "your lips but better" á einstaklega vel við þennan varalit.




Guerlain er rosalega fínt (dýrt) snyrtivörumerki svo ég skil vel ef það er utan fjárhag sumra, það er a.m.k. fyrir utan minn. Það vill bara svo skemmtilega til að ég hef afskaplega lítið peningavit og er auðseljanleg,* það liggur við að það væri hægt að selja mér skólpvatn í réttum umbúðum. En að mergi málsins, þá mega starfsmennirnir í varalitaþróunardeildinni hjá Guerlain eiga það að þeir framleiða afar fallega varaliti. (sek um að eiga fleiri - blessbless peningar)



er friðarmerkið alveg örugglega nógu augljóst?

Það skemmtilegasta við þessa varaliti eru líklega umbúðirnar (var búin að vara við lauslæti mínu að þessu leyti). Þær eru rosalega stórar og klunnalegar en þær innihalda tvo spegla! Maður opnar varalitinn og búmm, tveir speglar. Þessi ákveðni litur hefur fengið að fljóta með á djammið þó svo að ég var kannski ekki með hann á vörunum. Þessi spegill sko.




Eins og ég sagði áðan þá myndi ég flokka Rose Ensoleille undir "your lips but better" hattinn. Hann er rosalega léttur í sér sem er ekki einkennandi fyrir þessa formúlu (Rouge G) sem er yfirleitt í þykkari kanntinum. Endingartíminn á honum er ekki langur, en hann eyðist fallega af vörunum.
RE er það mjúkur og léttur að mér líður eiginlega bara eins og ég sé með varasalva þegar ég set hann á mig. Ekki blekkjast þó, það eru afar fáir varalitir sem næra varirnar nokkuð, þvert á móti eiga varalitir frekar til með að þurrka varirnar upp. Þess vegna er afar mikilvægt að maka nógu mikið af alvöru varasalva á munninn fyrir svefninn.




Rose Ensoleille var hluti af vor/sumar línu Guerlain árið 2012 (semsagt limited edition) og til að réttlæta kaupin á honum þá hann var keyptur á 20% afslætti á miðnætursprengu. Ég verð þó segja að þrátt fyrir snilldarumbúðir og fallega áferð þá var RE ekki alveg peninganna virði. Ég er nokkuð viss um að flest snyrtivörumerki framleiði svipaða liti fyrir helmingi minni pening.
Segjum bara að maður sé í raun að græða tvo spegla ef maður fjárfestir í Rouge G varalitunum hjá Guerlain. Ekki?
-n

*Get your dirty mind out of the gutter.







2 comments: