Vermilion Red er svona týpískur rauður litur, ekki ósvipaður Russian Red, en VR er ekki jafn dökkur og svo er áferðin önnur. VR er flokkaður undir satin áferð hjá MUFE sem mér finnst persónulega ekki sambærilegur við satin áferðina frá MAC, þessi þekur betur og endist lengur. Myndi segja að hann sé blanda af amplified og matte áferðunum hjá MAC.
Ég setti hann t.d. á mig fyrir kl. 7 í morgun og þurfti fyrst að bæta á hann um ellefuleytið sem er nokkuð vel að verki staðið. Svo mæli ég enn og aftur með að nota alltaf varablýant með rauðum varalitum (Brick frá MAC hjá mér í þetta skiptið). Þarf líka að taka fram að VR á til að færa sig svolítið svo ég mæli með að hafa spegil í töskunni ef þú ætlar að fara út með hann á þér.
Þetta er fyrsta varan frá Make Up For Ever sem ég kaupi mér, en ég hef þó lengi verið forvitin um þetta merki. Þetta eru almennilegar snyrtivörur í dýrari kantinum og svo hefur einnig verið vesen að nálgast þær í Evrópu þar til nýlega eftir að Sephora byrjaði að opna verslanir sínar um allar trissur. Ef ekki væri fyrir prísinn og almennt pengingaleysi hefði ég líklega keypt mér mun meira frá MUFE en það verður að bíða betri tíma þegar ég er annað hvort búin að gifta mig vel eða vinna í lottóinu.
fannst frábært að vera í stíl við rútuna
Annars fíla ég VR og myndi mæla með honum við einhvern sem myndi nenna að hafa fyrir honum. Það er þó eitt sem fer dálítið í taugarnar á mér: Lyktin. Ég veit ekki hvað málið er en ég sakna vanillulyktarinnar af MAC varalitunum þegar ég er með þennan á mér. Hún er samt alls ekki vond,
búslóðin og bugunin
Vermilion Red er þó ekki litur sem ég myndi mæla með að ferðast með (né að borða sushi með, eins og ég gerði áðan, hann þoldi ekki árásina). Góður guð, það var nógu mikið vesen að halda þriggja-tösku-40-kílóa farangrinum mínum frá sígaununum sem vildu ólmir "hjálpa" varnarlausu stelpunni gegn greiðslu. Núna er ég fjórum evrum fátækari.
-n




No comments:
Post a Comment