Savage er ótrúlega líkur fimmtándanum: Gigolo, þar sem þeir eru báðir berjarauðir sem hægt er að stjórna þekju með magni. Í rauninni er Savage bara verri útgáfa af Gigolo - hann er afar miskunnarlaus, festist í öllum þurrki, blæðir í litlu línurnar og það er ótrúlega erfitt að fá hann jafnan. Fékk mær í útskriftarförðun í gær (hamingjuóskir til B!) og þurfti að taka á móti henni hrikalegar varir og ég sem var nógu mygluð til að byrja með. (fínt samt að fá vitni sem getur vottað fyrir að ég fylgi reglum áskoruninnar)
Ég er eiginlega búin að ákveða að þessi palletta verður ekki notuð í hversdagskyni aftur. Plum Wine var allt í lagi en þessum lit fylgdi bara allt of mikið vesen. (aint nobody got time for that)
Ég er eiginlega búin að ákveða að þessi palletta verður ekki notuð í hversdagskyni aftur. Plum Wine var allt í lagi en þessum lit fylgdi bara allt of mikið vesen. (
Þar sem Savage er hreinlega ekki þess virði að fjalla meira um ætla ég að snúa mér í allt annað mál en ég svo sátt með lífið núna (er td orðin fullorðin og á leið í háskóla) og vil deila því. Um daginn rakst ég á gamla bekkjarsystur, sem ég hef ekki hitt í nokkur ár, sem hafði orð á hversu mikið hún elskaði þetta blogg. Kalda hjartað brosti yfir þessum fréttum því ég bjóst ekki við að aðrir en mínir nánustu gáfu sér tíma í að kíkja á varalitablætið. (tilneydd að sjálfsögðu) En svo hefur síðan fengið yfir hundrað heimsóknir á dag síðustu daga, án þess að ég deili henni sérstaklega og það gleður mig óendanlega. Vona innilega að þeir sem lesa hafi einhverja ánægju af.
Nema að pabbi sé að refresha einnvaralituradag.blogspot.com 100x á hverri vakt. (hann er #1 löggufan)
En að mergi málsins: ekki kaupa Savage. (arggg)
-n
Nema að pabbi sé að refresha einnvaralituradag.blogspot.com 100x á hverri vakt. (
En að mergi málsins: ekki kaupa Savage. (
-n


No comments:
Post a Comment